13.11.2009 13:29

Að treysta Guði fyrir miklum hlutum

Mt.19.26  "Guði er ekkert um megn."

Enskt ljóðskáld skrifaði; 

"Varastu þá sem standa afsíðis,

og mæta öllum kringumstæðum með átölum.

Heimurinn stæði kyrr

ef þeir sem stjórnuðu væru þeir sem segðu alltaf,

"Þetta er ekki hægt.""

Láttu ekki orðin "EKKI HÆGT" stoppa þig.

Jesús sagði, "Guði er ekkert um megn"

Ef þeir sem breyttu heiminum hefður látið alla "óhugsandi" hluti kyrra, lifðum við enn í svörtustu forneskju.

1. Þýskir sérfræðingar áætluðu að lestar sem ferðuðust á 40km hraða á klst. myndu valda alvarlegum hávaða og að farþegarnir myndu kafna þegar þeir keyðu í gegnum jarðgöng. Bandaríkjamenn bættu um betur og sögðu að það þyrfti að opna fleyri geðveikrahæli því fólk myndi missa vitið þegar það sæi fyrstu lestarnar.

2.  Þegar YWCA (Young Women´s Christian Association) Kristilegt félag ungra kvenna auglýsti fyrsta vélritunarnámskeiðið fyrir konur komu fram hörð viðbröggð sem sögðu "að líkamsbyggingu kvenna  myndi hraka vegna slíks álags."

3.  Sérfræðingar héldu því fram að járnskip ættu aldrei eftir að fljóta, járnið ætti eftir að eyðileggja möguleikan á því að nota kompás.

4.  Árið 1797 fordæmdu bændur í New Jersey fyrsta plóginn sem smíðaður var úr smíðajárni með þeim rökum að hann myndi eytra jarðveginn og ýta undir vöxt illgresis.

Orð sérfræðinganna !!

Flest erum við þannig gerð að okkur hættir til að hafa trú fyrir litlu frekar en miklu. Hugsjón er frumskilyrði til að komast af. Hugsjón frá Guði er aðeins hægt að meðtaka í trú og henni er viðhaldið með bæn og eldsneytið er Orð Guðs.

Spurningin er ekki um það hvað þú getur gert, heldur hvað Guð getur gert í lífi þínu þegar það er fullkomlega gefið honum. Hugsjón kemur í kring hlutum sem stand utan þess sem við teljum fyrirsjáanlegt, öruggt og þess sem við væntum. Okv.29.18   "Þar sem engar vitranir eru týnir fólk áttum."     Ef Guð hefur gefið þér hugsjón - fylgdu henni og treystu Guði fyrir meiru og stærri hlutum.

 

Það sem skylur að sigur og tap er - undirbúningurinn !  Það sem Jesús gerði árla morguns og seint um kvöld, var undirbúningur - hann bað...  Ef þú ætlar að vaxa í Guði þá verður það að undirbúa sig að verða hluti af daglega lífinu. Þú mátt aldrei hætta að spyrja Guð, "Hvað viltu að ég geri?"  Skipstjórinn á Queen Mary var spurður að því hversu langan tíma það tæki að stopp skipið, og hann svaraði, "Rétt rúmlega eina mílu!" síðan bætti hann við, "Góður skipstjóri hugsar að minsta kosti eina mílu framm í tímann." Árangur þinn ákvarðast alltaf af því hversu mikils virði hluturinn er þér og hversu mikið þú ert tilbúinn til að undirbúa þig.

Okv.24.3  "Af speki er hús reist og af skynsemi verður það staðfast." Alexander Hamilton (1755/57 - 1804), einn af þeim mönnum sem löggðu grunninn að Bandaríkjunum, fyrsti fjármálaráðherrann sagði: "Menn segja mig snilling, en öll mín snild er fólgin í þessu; þegar ég stend frammi fyrir verkefni þá kanna ég það til hlýtar."

 

Þannig, að ef þú vilt ná árangri - undirbúðu þig vel.


                                

Flettingar í dag: 866
Gestir í dag: 85
Flettingar í gær: 976
Gestir í gær: 137
Samtals flettingar: 871980
Samtals gestir: 54539
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 21:39:58